




Naustavör 62
200 Kópavogur
Björt og falleg íbúð í Naustavör sem leigist ásamt húsgögnum með rúmgóðu, opnu alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa renna saman. Stórir gluggar eru á íbúðinni og úr stofunni er gengið út á rúmgóðar og skjólgóðann pall með góðri setuaðstöðu.
Eldhúsið er nútímalegt og vel útbúið, með stórri eyju og góðu vinnu- og skápaplássi og svefnherbergið er rúmgott með góðum innbyggðum fataskápum. Baðherbergið er stórt og glæsilegt með walk-in sturtu og góðri innréttingu. Sér þvottahús er í íbúðinni útfrá eldhúsinu með þvottavél og þurrkara. Bílastæði eru fyrir utan húsið og því er aðgengi að íbúðinni þægilegt.
Íbúðin stendur við sjávarsíðuna á Kársnesi þar sem fallegar göngu- og hjólaleiðir liggja meðfram sjónum. Kársnesskóli og Sundlaug Kópavogs eru í nágrenninu og stutt er í helstu þjónustu Kópavogs.
Íbúðin er laus til leigu frá 15. september. Leiga fyrir tímabilið 15.–30. september er 185.000 kr. Frá og með 1. október er mánaðarleigan 370.000 kr., greidd fyrsta dag hvers mánaðar.
Fylgifé
Þvottavél
Þurrkari
Örbylgjuofn
Ísskápur
Uppþvottavél
Svalir
Með húsgögnum
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 2 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
370.000 kr
Laus frá
14 sep 2026
Leigutímabil
12 mánuðir
Fyrsti mánuður
370.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 740.000 krInnflutningsverð
1.110.000 kr
Leigt út af Bryndís Guðjónsdóttir