




Jörfabakki 4
109 Reykjavík
Björt og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð að Jörfabakka 4, staðsett á fyrstu hæð til hægri, aðeins fjórar tröppur upp frá inngangi.
Íbúðin er með tvö svefnherbergi, rúmgóða stofu og suðursvalir. Sérþvottahús er innan íbúðar og henni fylgir sérgeymsla í kjallara hússins.
Eldhúsið er vel búið með innbyggðum ísskáp, uppþvottavél og örbylgjuofni, ásamt spanhelluborði og gufugleypi. Eldhúsið er rúmgott og með góðu vinnuplássi – eldhús sem svo sannarlega er gaman að elda í.
Mest öll íbúðin var endurnýjuð árið 2024, að undanskildu baðherbergi og þvottahúsi. Á stofu og í svefnherbergjum er fallegt gegnheilt hnotuparket.
Í sameign er góð hjólageymsla ásamt rúmgóðu þurrkherbergi með þvottasnúrum. Einnig er sameiginlegt salerni í kjallara.
Við húsið eru tvö sameiginleg hleðslustæði fyrir rafbíla, með hleðslustöðvum á vegum ON.
Íbúðin hentar vel einstaklingi, pari eða lítilli fjölskyldu sem leitar að þægilegri og vel skipulagðri íbúð með góðri aðstöðu.
Athugið: Framkvæmdir standa nú yfir utanhúss við húsið og af þeim sökum er ekki hægt að nota svalir í bili, að minnsta kosti til áramóta.
Gæludýr geta verið leyfð að höfðu samráði við leigusala. Hvert tilfelli er metið sérstaklega og óskað er eftir upplýsingum um gæludýrið, svo sem hvort um sé að ræða kött eða hund og, ef um hund er að ræða, tegund og stærð.
Fylgifé
Ísskápur
Örbylgjuofn
Uppþvottavél
Geymsla
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Internet ekki innifalið
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Húsreglur
Hundar leyfðir
Kettir leyfðir
Fuglar leyfðir
Fiskar leyfðir
Nagdýr leyfð
Mánaðarleiga
350.000 kr
Laus frá
1 nóv 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
350.000 kr
Tryggingarfé
2 mánuðir / 700.000 krInnflutningsverð
1.050.000 kr
Leigt út af Unnar Hjálmarsson