




Austurhólar 4
800 Selfoss
ATH: Allar umsóknir þurfa að berast í gegnum síðuna okkar www.ivera.is Laus til leigu ný og glæsileg 3ja herbergja íbúð með stóru alrými!
Velkomin inn í fallegt 82,4 fm heimili að Austurhólum 4 á Selfossi. Íbúðin er með sér inngangi af glæsilegu stigahúsi. Austurhólar er í vel staðsettu hverfi og stutt er í þjónustu, leik,- og grunnskóla, íþrótta og útivistarsvæði. Íbúðin er á 4.hæð í lyftuhúsi.
Nánari lýsing Gengið er inn í forstofu með fataskáp. Úr forstofunni er 7,8 fm geymsla á hægri hönd og á vinstri hönd er gengið inn í annað herbergi íbúðarinnar. Beint fram af forstofunni er rúmgott og bjart alrými sem samanstendur af stofu og eldhúsi. Í eldhúsinu er gott skápapláss og úr stofunni er gengið út á stórar og rúmgóðar svalir með glæsilegu útsýni. Í íbúðinni eru tvö svefnherbergi, bæði með góðum fataskápum. Baðherbergið er með upphengdu salerni, sturtu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Gardínur, ljós, uppþvottavél, ísskápur og frystihólf fylgja íbúðinni. Í sameign er hjóla- og vagnageymsla. Fjöldi sameiginlegra bílastæða er við húsið og rafbílahleðslukerfi hefur verið sett upp.
Myndir eru af sambærilegri íbúð
Leiguverð og kostnaður Leiguverð er 304.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu. Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign. Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði. Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu. Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Svalir
Geymsla
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hundar leyfðir
Kettir leyfðir
Fiskar leyfðir
Fuglar leyfðir
Nagdýr leyfð
Mánaðarleiga
304.000 kr
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
304.000 kr
Tryggingafé
3 mánuðir / 912.000 krInnflutningsverð
1.216.000 kr
Leigt út af María Ingvarsdóttir