




Gerplustræti 37
270 Mosfellsbær
Til leigu er falleg og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á fyrstu hæð með sérinngangi við Gerplustræti 37 í Mosfellsbæ. Íbúðinni fylgir sérmerkt stæði í lokuðum bílakjallara. Íbúðin er björt og vel skipulögð. Frá stofu er útgengt á hellulagðan sérafnotaflöt sem snýr til suðurs. Í íbúðinni eru þrjú rúmgóð svefnherbergi, öll með fataskápum. Baðherbergið er með fallegri innréttingu þar sem þvottaaðstaða er snyrtilega falin í innréttingu. Gengið er inn um sérinngang í forstofu með góðum fataskáp. Eldhús og stofa eru í opnu og björtu alrými. Eldhúsið er með vandaðri AXIS-innréttingu með efri og neðri skápum. Á móti innréttingunni er rúmgóð eyja með helluborði, góðu skúffuplássi og barborði. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja íbúðinni. Með íbúðinni fylgir góð sérgeymsla í sameign og sérmerkt stæði í lokuðum bílakjallara. Íbúðin er laus til afhendingar frá og með 1. október 2026. Leiguverð: 375.000 kr. á mánuði. Um er að ræða langtímaleigu. Íbúðin er reyklaus og gæludýr eru ekki leyfð. Áhugasamir eru vinsamlega beðnir um að senda umsókn á svangrund(a)svangrund(.)is þar sem fram koma: • nöfn og aldur þeirra sem munu búa í íbúðinni, • atvinna og vinnustaður, • núverandi húsnæði og ástæða fyrir flutningi, • æskilegur leigutími, • stuttar upplýsingar um umsækjendur, • meðmæli, ef þau eru fyrir hendi. Vegna mikils fjölda umsókna er eingöngu haft samband við umsækjendur sem koma til greina.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Geymsla
Svalir
Bílskúr
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
375.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Laus frá
1 okt 2026
Leigutímabil
13 mánuðir
Fyrsti mánuður
375.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 750.000 krInnflutningsverð
1.125.000 kr
Leigt út af Guðmundur Gylfi Guðmundsson