




Suðurhvammur 5
220 Hafnarfjörður
Til leigu er björt og rúmgóð 108 fm 3ja herbergja endaíbúð á 3. hæð í Hafnarfirði. Íbúðin er með gluggum í þrjár áttir, flottum svölum og víðu útsýni. Eigninni fylgir 6 fm sérgeymsla og þvottaherbergi er í kjallara. Um er að ræða vel skipulagða eign sem stendur hátt og nýtur því góðrar birtu og útsýnis, með Suðurbæjarlaug, leikskóla og skóla í næsta nágrenni. Hér er því um að ræða bjarta og rúmgóða eign á góðum stað þar sem þægindi, þjónusta og útivist fara vel saman.
Leitað er að langtímaleigjanda, reglusömum og ábyrgum sem getur sýnt fram á stöðugar tekjur og lagt fram meðmæli. Partýhald og reykingar eru ekki leyfð. Gæludýr eftir samkomulagi.
- Leiguverð: 370.000 kr. á mánuði
- Hiti innifalin ì leigu
- Trygging: 2 mánaða leiga
- Laus fljótlega eða eftir samkomulagi
Athugið að eigninni getur fylgt 26 fm bílskúr og er rafhleðslustöð utan á bílskúr. Verð eftir samkomulagi.
Áhugasamir sendi vinsamlega stutta kynningu á sér, fjölda í heimili, atvinnu og óskuðum leigutíma.
Fylgifé
Uppþvottavél
Geymsla
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
370.000 kr
Laus frá
15 ágú 2026
Leigutímabil
12 mánuðir
Fyrsti mánuður
370.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 740.000 krInnflutningsverð
1.110.000 kr
Leigt út af Þorvarður Atli Þórsson