




Garðastræti 16
101 Reykjavík
Hugguleg íbúð á frábærum stað í miðbæ Reykjavíkur
Hugguleg og vel staðsett íbúð í hjarta Reykjavíkur, í nálægð við fjölbreytta menningu, verslanir, veitingastaði og alla helstu þjónustu sem miðborgin hefur upp á að bjóða.
Stutt er í bæði skóla og leikskóla og almenningssamgöngur eru í næsta nágrenni, með góðum tengingum við öll hverfi höfuðborgarsvæðisins.
Nánari lýsing
Anddyri: Gengið er inn um sérinngang í teppalagða forstofu. Inn af forstofu er rými þar sem þvottavél er staðsett.
Hol/gangur: Parketlagt hol sem tengir saman helstu vistarverur íbúðarinnar.
Eldhús: Viðarinnrétting með góðu skápaplássi. Parket er á gólfi og flísar á milli efri og neðri skápa. Eldhúsið er búið ísskáp, ofni, helluborði og viftu.
Stofa: Rúmgóð og björt stofa með gluggum til suðurs. Parket á gólfi.
Svefnherbergi: Parketlagt svefnherbergi með fataskáp.
Baðherbergi: Snyrtilegt baðherbergi með innréttingu og handlaug, sturtuklefa og salerni. Inn af baðherberginu er lítið geymslurými.
Mögulegt er að nýta íbúðina sem tvö aðskilin útleiguherbergi.
Laus til afhendingar frá 1. september 2026.
Gerð er krafa um bankaábyrgð eða sambærilega tryggingu.
Fylgifé
Ísskápur
Geymsla
Samningsatriði
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
350.000 kr
Laus frá
1 sep 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
350.000 kr
Tryggingafé
3 mánuðir / 1.050.000 krInnflutningsverð
1.400.000 kr
Leigt út af Ágúst Þorbjörn Þorbjörnsson