




Dísaborgir 7
112 Reykjavík
Björt og rúmgóð 4ra herbergja íbúð með sérinngangi, endaíbúð á annarri hæð með glæsilegu útsýni til suðurs, vestur og norðurs,
Stutt í þjónustukjarna og almenningssamgöngur í Spönginni. Stutt gönguleið í skóla og leikskóla, hentar vel fyrir fjölskyldufólk.
Leiga til eins árs með möguleika á framlengingu.
Forstofa: Með flísum á gólfi og skápum.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Baðkar með sturtuaðstöðu, hvít innrétting. Tenging fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi.
Eldhús: Með parketi á gólfi, nýlegri innréttingu og björtum borðkrók með glugga á tvo vegu.
Stofa: Er rúmgóð með parketi á gólfi og útgengi út á stórar suðursvalir
Hjónaherbergi: Með parketi á gólfi og gluggum til suðurs með miklu útsýni.
Tvö barnaherbergi : Með parketi á gólfi, fataskápur í öðru herberginu.
Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði og 3 fm. geymsla á jarðhæð.
Fylgifé
Geymsla
Svalir
Uppþvottavél
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 4 leigutakar
Hundar leyfðir
Kettir leyfðir
Fiskar leyfðir
Mánaðarleiga
350.000 kr
5 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
1 sep 2026
Leigutímabil
12 - 24 mánuðir
Fyrsti mánuður
350.000 kr
Tryggingafé
3 mánuðir / 1.050.000 krInnflutningsverð
1.400.000 kr
Leigt út af Lárus Björn Halldórsson