




Hallakur 2a
210 Garðabær
Björt og rúmgóð 3ja herbergja útsýnisíbúð á 3. hæð í sex íbúða húsi við Hallakur 2A á eftirsóttum stað í Akrahverfinu í Garðabæ. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. LAUS TIL AFHENDINGAR STRAX og leigð til 12-15 mánaða í senn.
Eignin skiptist í eldhús, stofu og borðstofu í opnu rými með skjólsælum og rúmgóðum vestursvölum, tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús með glugga en henni fylgir sér geymsla í kjallara og hlutdeild í sameign, sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Nánari lýsing:
Forstofa með fataskáp, parket á gólfi.
Eldhús með L-laga eikar innréttingu, bakaraofn í vinnuhæð og áfast elshúsborð, parket á gólfi.
Stofa og borðstofa, björt og rúmgóð, parket á gólfi og útgengt á rúmgóðar suðvestursvalir með fallegu útsýni.
Hjónaherbergi með fataskápum, parket á gólfi.
Barnaherbergi með fataskáp, parket á gólfi.
Baðherbergi með glugga, flísalagt í hólf og gólf með gólfhita, eikarinnréttingu, upphengt salerni, baðkar og sturta.
Þvottahús með glugga, flísalagt með gólfhita, veggskápar.
Geymsla á jarðhæð / kjallara (13,4 fm).
Húsið að utan er klætt með áli, gluggar eru ál/tré og lóðin fullfrágengin með fjölda malbikaðra bílastæða, hleðslustöðvum á sameiginlegu bílaplani og stéttar hellulagðar. Sameign hússins er mjög snyrtileg, stigi teppalagður og þrif á sameign innfalinn.
Frábært staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla - Krónan í göngufæri.
Fylgifé
Geymsla
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 4 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
390.000 kr
Laus frá
27 júl 2026
Leigutímabil
15 mánuðir
Fyrsti mánuður
390.000 kr
Tryggingafé
3 mánuðir / 1.170.000 krInnflutningsverð
1.560.000 kr
Leigt út af Arnar Már Steinarsson