




Gerplustræti 24
270 Mosfellsbær
Nýtt í leigu! Gerplustræti 24 Mosfellsbæ - Afar falleg, rúmgóð og vel skipulögð 3ja -4ra herb. íbúð með sérinngangi og afgirtum palli til suðvesturs! Stór geymsla inn af hjónaherbegi sem hefur verið nýtt sem herbergi (gluggalaust).
Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson og Guðmundur Hallgrímsson lögg. fasteignasalar kynna til leigu afar fallega og vel skipulagða 3ja-4ra herbergja 99,3 fermetra íbúð á 1. hæð með sérinngangi í snyrtilegu og nýlegu fjölbýli byggðu 2016 við Gerplustræti 24 í Mosfellsbæ. Íbúðin er með stórri afgirtri verönd til suðvesturs og sérbílastæði í bílakjallara. Góð þvottaaðstaða innan íbúðar. Sérgeymsla er innan íbúðar og hefur verið nýtt sem barnaherbergi.
Hellulagðar stéttar fyrir framan hús og tyrfður bakgarður. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð. Sameign er snyrtileg og til fyrirmyndar.
Staðsetning íbúðar í rólegu fjölskylduvænu hverfi í Helgafellslandi. Helgafellsskóli í göngufjarlægð (Gerplustræti 14) og nýlegur leikskóli sömuleiðis (Sumarhús). Frábærir útivistamöguleikar allt í kring og fallegar göngu og hjólaleiðir.
Lýsing eignar: Sér inngangur er í íbúð. Forstofa: Með flísum á gólfi og skápum. Alrými samanstendur af stofu og eldhúsi. Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri HTH eldhúsinnréttingu. AEG stál bakaraofn og Electrolux spanhelluborð. Tengi fyrir uppþvottavél og lýsing undir efri skápum. Gluggar til suðvesturs. Stofa: Er rúmgóð og með harðparketi á gólfi. Gluggar til suðvesturs og útgengi á verönd. Verönd: Er afgirt og snýr til suðvesturs inn í bakgarð hússins. Hjónaherbergi: Með harðparketi á gólfi, skápum og gluggum til austurs. Geymsla/herbergi: Er staðsett inn af hjónaherbergi með harðparketi á gólfi. Getur einnig nýst sem fataherbergi eða barnaherbergi (er nýtt sem barnaherbergi í dag). Svefnherbergi II: Með harðparketi á gólfi, skápum og glugga til austurs. Baðherbergi: Er mjög rúmgott, með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili, innrétting við vask með lýsingu í spegli. Handklæðaofn og upphengt salerni. Tenglar fyrir þvottavél/þurrkara, gott vinnuborð og skápapláss.
Bílastæði: Í lokuðum bílakjallara. Grunnkerfi fyrir rafhleðslustöðvar komið í bílakjallara. Sameiginleg vagna- og hjólageymsla: Er staðsett á jarðhæð í sameign hússins.
Allar nánari upplýsingar veita: Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is Guðmundur Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 898-5115 eða á netfanginu gudmundur@fastlind.is
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Bílskúr
Geymsla
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
430.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Laus frá
1 ágú 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
430.000 kr
Tryggingafé
3 mánuðir / 1.290.000 krInnflutningsverð
1.720.000 kr
Leigt út af Heimir Fannar Hallgrímsson