




Jöfursbás 11C
112 Reykjavík
Fallega þriggja herbergja íbúð í Jöfursbás 11c, Gufuneshverfi í Grafarvogi.
Björt og falleg íbúð á 3ju hæð með sérinngangi og svölum í þessu lyftuhúsi sem byggt var 2021.
Lýsing íbúðar: Forstofa er með flísum á gólfi, fatahengi og spegli Alrými Stofa, borðstofa og eldhús eru í björtu huggulegu rými með parket á gólfi. Útgengt á góðar svalir úr stofu. Í eldhúsi er góð innrétting með ofni, helluborði og viftu. Það er stór ísskápur og frystir. Auk uppþvottvélar og örbylgjuofns. Svefnherbergi 1 er með String hillum, 200*160cm rúmi og myrkvunargardínum. Svefnherbergi 2 er án húsgagna og hafa fyrri leigjendur notað það sem auka svefnherbergi eða skrifstofu. Baðherbergi með vaskinnréttingu,walk-in sturtu og upphengdu salerni. Það er þvottavél og þurrkgrind og það er tengi fyrir þurrkara. Nýtt parket er á öllum rýmum íbúðarinnar, nema á baðherbergi og forstofu.
Einnig fylgir ryksuga, straujárn, straubretti og netsendir með íbúðinni.
Sameign og fleira: Í sameign hússins er vinnuaðstaða/veislusalur sem íbúar geta nýtt sér. Einnig þvottahús og póstaðstaða. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla er í sérhúsi á lóðinni, sem er stór og fjöskylduvæn. Íbúar hafa aðgang og afnot af matjurtagarði sem er nærri húsinu og er í eigu Reykjavíkurborgar.
Frá húsinu er glæsileg sjávarsýn og útsýni yfir Geldinganes og Viðey. Göngu og hjólastígar verða meðfram ströndinni sem tengjast öðrum íbúðarsvæðum í Grafarvogi. Húsin mynda garðrými fyrir skjólgott torg, leiksvæði og grasfleti. Tekið var tillit til sólarátta við skipulagningu byggðarinnar þannig að garðrýmin eru í góðu skjóli. Svæðið er vinsælt meðal dýraeiganda sem geta farið í göngutúr með gæludýrin í náttúrunni.
Fylgifé
Þvottavél
Örbylgjuofn
Ísskápur
Uppþvottavél
Svalir
Með húsgögnum
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 4 leigutakar
Hundar leyfðir
Kettir leyfðir
Mánaðarleiga
270.000 kr
7 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
18 júl 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
270.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 540.000 krInnflutningsverð
810.000 kr
Leigt út af Sveinn Sampsted