




Fífusel 35
109 Reykjavík
Björt og rúmgóð 4 herbergja íbúð í Fífuseli til langtímaleigu
Til langtímaleigu er falleg og vel skipulögð 102,2 m² íbúð á tveimur hæðum að Fífuseli 35 í Reykjavík.
Íbúðin er á fjórðu hæð og skiptist meðal annars í bjarta og rúmgóða stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Einnig eru mjög rúmgóðar lokaðar svalir sem snúa í suður og nýtast sem gott viðbótarrými stóran hluta ársins.
Íbúðin er björt og notaleg, með fallegu útsýni og góðu skipulagi sem hentar vel fjölskyldu, pari eða einstaklingum sem vilja gott rými. Stutt er í skóla, leikskóla, verslun, íþróttaaðstöðu og almenningssamgöngur.
Helstu upplýsingar:
• 102,2 m² • Fjögur herbergi • Þrjú svefnherbergi • Íbúð á tveimur hæðum • Rúmgóðar lokaðar suðursvalir • Fallegt útsýni • Langtímaleiga • Leiguverð: 395.000 kr. á mánuði • Hiti, rafmagn og hússjóður innifalinn • Trygging: 2 mánaða leiga • Laus frá 20. september • Húsgögn og heimilistæki samkvæmt samkomulagi
Leitað er að reglusömum og traustum leigjendum sem hugsa vel um eignina.
Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að senda stutta kynningu á sér, hverjir myndu búa í íbúðinni og atvinnustöðu.
Fylgifé
Þvottavél
Ísskápur
Uppþvottavél
Svalir
Eldhús
Samningsatriði
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
395.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Laus frá
20 sep 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
395.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 790.000 krInnflutningsverð
1.185.000 kr
Leigt út af Ísak Leví Jónsson