




Litlagerði 9
730 Reyðarfjörður
-= Sækja þarf um á briet.is =- -= You need to apply at briet.is =-
Til leigu er 3ja herbergja íbúð, 90,4 m² í nýlegu parhúsi á Reyðarfirði
Gengið er inn í rúmgóða forstofu með stórum fataskápum. Við hliðina á forstofu er rúmgott svefnherbergi, með tvöföldum fataskápum. Inn af forstofu er gengið inn á gang, þar sem er aðgengi inn í geymslu og hinumegin að rúmgóðu baðherbergi með sturtu (walk in), upphengdu salerni, handlaug og handklæðaofn, inn af baðherbergi er þvottahús. Tæknirými er í sér herbergi milli baðherbergis og hjónaherbergis. Hjónaherbergi er rúmgott með tvöföldum fataskáp. Geymsla er innan íbúðar milli eldhúss og barnaherbergis. Úr stofunni er aðgengi að bakgarðinum. Góður andi er í íbúðinni, þar sem sjálfvirk loftræsting er innan hennar. Gólfhiti er í allri eigninni og neysluvatnið er forhitað.
Gæludýrahald er ekki leyft.
Leigufjárhæð er tengd vísitölu neysluverðs. Rafmagn og hiti er ekki innifalið í leigu. Leigusamningur er ótímabundinn.
Leggja þarf fram tryggingu sem nemur 2ja mánaða leigu, sem getur verið í formi bankaábyrgðar, tryggingarfé lagt inn á leigusala, leigugreiðslu- og viðskilnaðartrygging sem leigjandi kaupir hjá viðurkenndu tryggingafélagi.
Ekki er hægt að skoða eignina nema af myndum á netinu fyrir úthlutun, sá aðili sem fær íbúðina úthlutað hefur sólarhring til að ákveða sig eftir skoðun á eignini sjálfri.
Öllum umsóknum er svarað eftir úrvinnslu
Fylgifé
Geymsla
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
280.000 kr
Laus frá
1 sep 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
280.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 560.000 krInnflutningsverð
840.000 kr
Leigt út af Leigufélagið Bríet