




Sunnusmári 10
201 Kópavogur
TIL LEIGU: Glæsileg og nýleg íbúð í Sunnusmára 10, 201 Kópavogi.
- Um íbúðina: Björt og rúmgóð íbúð með lokuðum svölum á 3. hæð í nýlegu lyftuhúsi (byggt 2024) á frábærum stað í Kópavogi. Íbúðin er tilvalin einstaklingum eða pörum, bæði þeim sem vilja íbúð með húsgögnum eða án en fyrir þau sem hafa áhuga og okkur líst vel á getum við látið húsgögn fylgja eins og dæmin í hornklofum.
- Forstofa: Með góðum fataskáp og myndavéladyrasíma. Nýr skenkur, skógrind, planta
- Stofa/borðstofa: Í opnu rými með eldhúsi. Þaðan er útgengt á 9,5 m² vestursvalir með svalalokun sem nýtast vel allt árið. Sófi, eldhúsborð, sjónvarp, sjónvarpsborð, mottur, stólar, skenkar, spegill, o.fl.
- Eldhús: Vönduð innrétting frá GKS og fallegur kvartssteinn á borðum. Innbyggð tæki: kæliskápur með frysti, ofn, hellur og uppþvottavél fylgja leigunni. Örbylgjuofn, panna, pottar, tæki og ýmis eldhúsáhöld eins og hnífar, gaflar, o.fl.
- Svefnherbergi: Rúmgott með góðum fataskáp. Kommóða, spegill, herðatré, mögulega rúm, o.fl.
- Baðherbergi: Flísalagt að mestu með vandaðri innréttingu, upphengdu salerni og glæsilegri „walk-in“ sturtu. Þvottavél+þurrkari, þrífingarefni, o.fl.
- Geymsla og sameign: 5,7 m² sérgeymsla fylgir í kjallara auk aðgangs að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
- Bílastæði: Fjöldi bílastæða á lóð og í nágrenninu.
- Umhverfið og umsókn: Sunnusmárinn er afar miðsvæðis á Reykjavíkursvæðinu þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Smáralind (verslunarmiðstöð), heilsugæsla, líkamsrækt, veitingastaðir og matvöruverslanir eru í göngufæri og stofnvegir stutt á undan sem tryggir mjög góðar samgöngur.
Áhugasamir vinsamlegast sendið mér umsókn, helst með stuttri kynningu á ykkur, upplýsingum um atvinnu, fjölskyldustærð og meðmælum ef hægt er. Reykingar og gæludýr eru bönnuð ásamt því að við ætlumst til að fólk hugsi um íbúðina eins og sína eigin. Aðeins reglusamir og áreiðanlegir aðilar koma til greina en við munum hafa samband við umsækjendur sem taldir eru henta best.
Fylgifé
Þvottavél
Þurrkari
Örbylgjuofn
Ísskápur
Uppþvottavél
Geymsla
Svalir
Samningsatriði
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 2 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
325.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Laus frá
17 ágú 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
325.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 650.000 krInnflutningsverð
975.000 kr
Leigt út af Kristján Gunnarsson