




Eskihlíð 14
105 Reykjavík
Rúmgóð og björt 96 m² íbúð til leigu í Hlíðahverfi í Reykjavík, á góðum stað nálægt Öskjuhlíð og Klambratúni. Stutt er í verslanir, þjónustu, almenningssamgöngur og miðbæ Reykjavíkur.
Íbúðin er leigð út með húsgögnum og skiptist í tvö svefnherbergi, rúmgóða stofu, eldhús, baðherbergi og svalir. Í aðalsvefnherberginu er tvíbreitt rúm. Annað svefnherbergið er nú án húsgagna, en rúm verður útvegað áður en leigutími hefst.
Í íbúðinni er einnig barnarúm, 120 × 60 cm, sem getur fylgt með ef þörf er á. Annars er hægt að fjarlægja það.
Eldhúsið er vel búið og þar er góð aðstaða til daglegrar matargerðar. Baðherbergið er snyrtilegt og með baðkari. Stofan er hlýleg og björt, með fallegu útsýni, sjónvarpi og Apple TV.
Þvottahús er í kjallara hússins, þar sem leigjandi hefur afnot af þvottavél og þurrkara. Bílastæði eru ómerkt, en leigjandi hefur rétt á einu bílastæði innan lóðar.
Íbúðin hentar vel pari eða fjölskyldu sem leitar að rúmgóðu og vel staðsettu heimili í grónu og fjölskylduvænu hverfi.
Fylgifé
Þvottavél
Þurrkari
Ísskápur
Uppþvottavél
Svalir
Með húsgögnum
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 4 leigutakar
Hundar leyfðir
Kettir leyfðir
Fuglar leyfðir
Mánaðarleiga
450.000 kr
Laus frá
17 júl 2026
Leigutímabil
12 - 24 mánuðir
Fyrsti mánuður
450.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 900.000 krInnflutningsverð
1.350.000 kr
Leigt út af Hlynur Hugi Jónsson