




Austurkór 63
203 Kópavogur
Vinsamlega sækið um íbúðina á heimasíðu okkar www.ivera.is
Glæsileg 4ra herbergja íbúð til leigu – Austurkór 63, Kórahverfi, Kópavogi Til leigu er glæsileg og vel skipulögð 100,1 fm fjögurra herbergja íbúð á annarri hæð í vönduðu lyftuhúsi við Austurkór 63 í Kópavogi. Íbúðin skiptist í forstofu, bjarta og rúmgóða stofu með opnu eldhúsi, þrjú rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og sér þvottaherbergi, sér geymsla fylgir í sameign. Eldhús og stofa Bjart og opið alrými þar sem eldhús og stofa mynda notalega heild. Eldhúsið er með fallegri innréttingu og góðu skápaplássi. Frá stofu er útgengt á rúmgóðar svalir með fallegu útsýni. Svefnherbergi Þrjú rúmgóð svefnherbergi, með góðum fataskápum. Baðherbergi Rúmgott baðherbergi með baðkari og miklu skápaplássi. Þvottaherbergi Sér þvottaherbergi er innaf baðherberginu með tengi fyrir þvottavél og þurrkara ásamt vaski. Geymsla 7,6fm geymsla fylgir íbúð, hún er í sameign á jarðhæð hússins. Íbúðin er staðsett í vinsælu og fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, útivistarsvæði og aðra helstu þjónustu.
Leiguverð og kostnaður Leiguverð er 395.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu. Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign. Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli.
Skilyrði fyrir leigu Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði. Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu. Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Íveru í síma 517 3440 eða með tölvupósti á ivera@ivera.is. Hér má sjá 3D sýningu af íbúðinni, https://my.matterport.com/show/?m=ag9vabaBYp5
Fylgifé
Svalir
Geymsla
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
395.000 kr
4 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
7 júl 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
395.000 kr
Tryggingafé
3 mánuðir / 1.185.000 krInnflutningsverð
1.580.000 kr
Leigt út af María Ingvarsdóttir