




Hafnarbraut 12A
200 Kópavogur
Björt og falleg tveggja til þriggja herbergja íbúð á annarri hæð við Hafnarbraut 12A á vinsælum stað á Kársnesinu til leigu. Íbúðin er 78,9 m² í nýlegu fjölbýlishúsi með snyrtilegri sameign, lyftu og hjólageymslu. Nánari lýsing á eigninni:
• Forstofa með fataskáp. • Eldhús í sameiginlegu rými með borðstofu. Með fallegum innréttingum, eldhúseyju ásamt innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. • Björt og falleg stofa með stórum gluggum. Gengið er þaðan út á rúmgóðar svalir með útsýni. • Hjónaherbergi með rúmgóðum fataskápum. • Aukaherbergi sem hægt er að nýta sem svefnherbergi, skrifstofu eða geymslu. Gluggi með opnanlegu fagi er í herberginu. • Flísalagt baðherbergi með rúmgóðri baðinnréttingu, hita í gólfi, walk-in sturtu og handklæðaofni. Innan baðherbergis er þvottaaðstaða með þvottavél og þurrkara sé þess óskað . • Sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu.
Íbúðin er staðsett í rólegu og fjölskylduvænu hverfi þar sem er stutt í skóla og alla helstu þjónustu. Fallegar gönguleiðir og leikvellir eru í hverfinu. Íbúðin er laus til afhendingar 5. ágúst og er leigusamningur gerður til eins árs í senn en með möguleika á framlengingu.
ATH húsgögn fylgja ekki með
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Svalir
Bílskúr
Þvottavél
Þurrkari
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
370.000 kr
2 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
5 ágú 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
370.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 740.000 krInnflutningsverð
1.110.000 kr
Leigt út af Gunnar Eyjólfsson