




Dalsbraut 24
260 Reykjanesbær
Til leigu – Dalsbraut 24, Reykjanesbæ
Eignasala.is Leiga – Bókið skoðun
Til leigu er einstaklega glæsileg og vel skipulögð 4ra herbergja endaíbúð á 2. hæð með sérinngangi við Dalsbraut 24 í Reykjanesbæ. Íbúðin er merkt 0206 og er 108,2 fm, þar af 5,8 fm sérgeymsla í sameign. Auk þess fylgja eigninni rúmgóðar 18,7 fm svalir sem bjóða upp á gott útsýni og heimilt er að loka samkvæmt reglum húsfélags.
Eignin skiptist m.a. í: Forstofu Bjarta stofu og borðstofu Eldhús með góðu vinnuplássi Þrjú svefnherbergi Baðherbergi Þvottahús Sérgeymslu í sameign Umhverfi
Íbúðin er staðsett á eftirsóttum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Stapaskóli og leiksvæði eru í örfárra mínútna göngufæri og af svölunum er útsýni yfir leiksvæði skólans. Við húsið eru fjölmörg bílastæði og hleðslustöðvar fyrir rafbíla.
Dalsbraut 24 er vandað tveggja hæða fjölbýlishús með samtals 11 íbúðum. Húsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt bárujárni og lerkiklæðningu. Gluggar og útihurðir eru úr áli og timbri.
Mikilvægar upplýsingar Íbúðin er laus til afhendingar strax. Íbúðin er jafnframt í söluferli. Leigusamningur verður með þriggja mánaða uppsagnarfresti samkvæmt samningi. Á leigutímanum þarf leigutaki að gera ráð fyrir að heimila sýningar á íbúðinni fyrir væntanlega kaupendur, í samráði við leigusala og fasteignasala og með eðlilegum fyrirvara.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun hjá Eignasala.is.
Fylgifé
Uppþvottavél
Geymsla
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 6 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
350.000 kr
Laus frá
3 júl 2026
Leigutímabil
12 - 15 mánuðir
Fyrsti mánuður
350.000 kr
Tryggingafé
3 mánuðir / 1.050.000 krInnflutningsverð
1.400.000 kr
Leigt út af Júlíus Margeir Steinþórsson