




Lindargata 28
101 Reykjavík
Vinsamlega sækið um íbúð á heimasíðu okkar www.ivera.is
Laus til leigu, falleg og björt 2ja herbergja íbúð að Lindargötu 28, 101 Reykjavík. Íbúðin er 54,5 fm þar af 6,6 fm geymsla í kjallara hússins. Íbúðin er á annarri hæðí lyftuhúsi. Íbúðin skiptist í eldhús og samliggjandi stofu, rúmgott svefnherbergi, ásamt baðherbergi. Íbúðin er frábærlega staðsett, í miðbæ Reykjavíkur þar sem stutt er í leikskóla og verslanir. Allar nánari upplýsingar veitir starfsfólk Íveru í síma 517-3440 eða á ivera@ivera.is
Nánari lýsing: Eldhús/stofa: Nýlegar og fallegar innréttingar í eldhúsi, innbyggður ísskápur og uppþvottavél fylgja eign. Eldhúsið er samliggjandi stofunni sem er rúmgóð og björt. Svefnherbergi: Rúmgott svefnherbergi með góðum fataskáp. Útgengt úr svefnherbergi út á litlar svalir sem snúa í bakgarð hússins. Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt og er með sturtu og upphengdu klósetti. Geymsla: 6,6 fm geymsla fylgir í kjallara hússins. Þvottahús: Sameigninlegt þvottahús er í kjallara hússins með aðgengi að þvottavél og þurrkara.
Leiguverð: 298.000 kr á mánuði. Innifalið er hiti og þrif á sameign (leiguverð er tengt neysluvísitölu og endurskoðast mánaðarlega).
Skilyrði fyrir leigu Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði. Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu. Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.
Fylgifé
Geymsla
Svalir
Ísskápur
Uppþvottavél
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
298.000 kr
4 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
2 júl 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
298.000 kr
Tryggingafé
3 mánuðir / 894.000 krInnflutningsverð
1.192.000 kr
Leigt út af María Ingvarsdóttir