




Seilugrandi 3
107 Reykjavík
Falleg tveggja herbergja íbúð á þriðju hæð, Seilugranda 3 í vesturbæ Reykjavíkur. Frábær staðsetning þar sem örstutt er í leik- og grunnskóla, háskóla, kaffihús, sundlaug, verslanir og göngu- og hjólaleiðir við sjóinn.
Eitt svefnherbergi með góðum skápum. Í eldhúsi er eldavél, ofn, ísskápur og uppþvottavél. Eldhús og stofa eru í sama rými og út frá stofu eru svalir í suður. Baðherbergið er rúmgott með sturtu, baðkari og þvottavél. Nýlegt harðparket er á gólfum.
Möguleiki er á að einhver húsgögn fylgi með íbúðinni ef leigjandi óskar, svo sem rúm, sófi, ljós, borð og stólar.
Geymsla fylgir íbúðinni, staðsett í kjallara (ekki inni í fermetrafjölda). Bílastæði í bílageymslu fylgir íbúð, möguleiki á hleðslustöð. Rúmgóð sameign þar sem möguleiki er að hengja upp þvott og geyma hjól.
Íbúðin leigist á 340.000 kr á mánuði ásamt vísitölutengingu og er tryggingin þrír mánuðir. Innifalið er hiti og rafmagn (miðað við eðlilega notkun) og húsfélagsgjöld nema samið sé um annað.
Gæludýr eru ekki leyfð.
Óskað er eftir reglusömum leigjanda / leigjendum. Meðmæli eru skilyrði. Íbúðin er reyklaus.
Fylgifé
Þvottavél
Ísskápur
Uppþvottavél
Geymsla
Svalir
Eldhús
Samningsatriði
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 2 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
340.000 kr
Laus frá
15 ágú 2026
Leigutímabil
12 - 24 mánuðir
Fyrsti mánuður
340.000 kr
Tryggingafé
3 mánuðir / 1.020.000 krInnflutningsverð
1.360.000 kr
Leigt út af Ásdís Magdalena Þorvaldsdóttir