




Sogavegur 79
108 Reykjavík
Til leigu – einstaklega björt og falleg 3ja herbergja íbúð í 108 Reykjavík.
Til leigu er glæsileg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð í rólegu hverfi í 108 Reykjavík. Íbúðin er á 3. hæð í vönduðu fjölbýlishúsi frá árinu 2020. Stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir og veitingastaði í Skeifunni sem er í þægilegu göngufæri.
Íbúðin er tæplega 80 m². Tvö rúmgóð svefnherbergi, björt stofa og eldhús í opnu og rúmgóðu alrými. Stórt baðherbergi sem nýtist einnig sem þvottahús. 30 m² há-suðursvalir sem eru einstaklega skjólgóðar og sólríkar. Sérmerkt bílastæði í bílakjallara með hleðslustöð. Það er lyfta í húsinu, sér loftræsisamstæða í íbúðinni sem tryggir gott loftflæði og stillir afköst eftir þörfum. Ljósleiðari er tengdur í húsið.
Íbúðin leigist með eftirfarandi eldhústækjum: Ísskáp, frysti, ofni, helluborði og háfi.
Leiguskilmálar: Laus frá 1. ágúst, eða mögulega örlítið fyrr samkvæmt samkomulagi!
Leitast er eftir 2 ára eða lengri leigusamningi. Þriggja mánaða trygging, hiti og rafmagn eru ekki innifalin í leiguverði. Við leitum að ábyrgum, snyrtilegum og reyklausum leigjendum sem ganga vel um eignina. Dýrahald er ekki leyft.
Leiguverð: 385.000 kr. á mánuði.
Fylgifé
Bílskúr
Ísskápur
Svalir
Uppþvottavél
Eldhús
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður ekki innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 4 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
385.000 kr
Laus frá
1 ágú 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
385.000 kr
Tryggingafé
3 mánuðir / 1.155.000 krInnflutningsverð
1.540.000 kr
Leigt út af Grímur Valdimarsson