




Baughús 35
112 Reykjavík
Til leigu er afar bjart, rúmgott og vel skipulagt parhús á tveimur hæðum á vinsælum og fjölskylduvænum stað í Grafarvogi. Boðið er upp á tímabundinn leigusamning til 12–18 mánaða og er leiguverðið viljandi haft umtalsvert lægra en gengur og gerist á markaðnum. Skilyrði fyrir því er að leigjandi taki að sér umsjón með tveimur köttum sem búa á heimilinu. Athugið að bílskúr fylgir ekki með í leigunni. Húsið skiptist í tvær hæðir þar sem á efri hæðinni er björt stofa með mjög hátt til lofts, glæsilegu útsýni og svölum, eldhús með nýlegri hvítri innréttingu, hjónaherbergi, barnaherbergi og flísalagt baðherbergi með baðkari. Á neðri hæðinni er forstofa með stórum skáp, tvö góð svefnherbergi og nýlega endurnýjað baðherbergi og þvottahús með sturtu. Út af stigapalli á milli hæða er gengið út í glæsilegan suðurgarð með skjólgirðingu og sólpalli, og fyrir framan húsið er hellulagt plan með hitalögn. Staðsetningin er frábær en skóli og leikskóli eru í göngufæri ásamt því að stutt er í Spöngina, Egilshöll, sundlaug og golfvöll. Húsið hentar fullkomlega fyrir ábyrga fjölskyldu sem vantar 4 svefnherbergi tímabundið
Fylgifé
Þvottavél
Örbylgjuofn
Ísskápur
Uppþvottavél
Svalir
Samningsatriði
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 6 leigutakar
Kettir leyfðir
Mánaðarleiga
390.000 kr
3 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
30 des 2026
Leigutímabil
12 - 18 mánuðir
Fyrsti mánuður
390.000 kr
Tryggingafé
550.000 krInnflutningsverð
940.000 kr
Leigt út af Sigurður Egill Sigurðsson