




Eskiás 4A
210 Garðabær
Vinsamlega sækið um íbúðina á heimasíðu okkar www.ivera.
Laus til leigu ný og glæsileg 3ja herbergja íbúð!
Velkomin inn í nýtt og vandað 74,4 fm heimili að Eskiás 4, Garðabæ. Íbúðin er með sérinngangi, gengið er inn á annarri hæð utanhúss. Eskiás er í vel staðsettu hverfi og stutt er í alla helstu þjónustu, leik,- og grunnskóla, íþrótta og útivistarsvæði. Staðsetningin er einnig örstutt frá megin ökuleiðum.
Nánari lýsing Gengið er inn í íbúðina í rúmgóða forstofu með fataskáp, komið er inn í opið og skemmtilegt rými þar sem eldhús og stofa mynda sameignilegt alrými. Gengið er út á svalir úr stofu, eldhúsið er með miklu skápaplássi og fallegri eyju upp við vegg.
Í íbúðinni eru tvö rúmgóð svefnherbergi, baðhergið er með upphengdu salerni og sturtu, þar er einnig tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Sér 3,7 fm geymsla er innan íbúðar en einnig er hægt að nýta rými undir stiga sem geymslurými.
Gardínur, ísskápur og frystihólf fylgir eigninni. Í sameign er hjóla,- og vagnageymsla. Öll bílastæði við Eskiás eru sameiginleg og rafbílahleðslukerfi verður sett upp. Djúpgámar eru staðsettir við húsin og gert er ráð fyrir fjórflokkun úrgangs. Allar íbúðir eru með aðgengi að inngarðinum þar sem skjólsælt er og einnig eru leiktæki þar fyrir börnin.
Leiguverð og kostnaður Leiguverð er 379.000 kr á mánuði og er tengt vísitölu. Innifalið í leiguverði er hiti ásamt rekstri á sameign. Leigutaki greiðir fyrir rafmagnsnotkun samkvæmt mæli. Skilyrði fyrir leigu Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði. Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu. Hægt er að vera með tryggingu lagða inná reikning, bankaábyrgð frá þínum viðskiptabanka eða Leiguskjól.
Fylgifé
Ísskápur
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
375.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Laus frá
24 jún 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
375.000 kr
Tryggingafé
3 mánuðir / 1.125.000 krInnflutningsverð
1.500.000 kr
Leigt út af María Ingvarsdóttir