




Eskiás 1A
210 Garðabær
Nýleg og vönduð 128 fm íbúð að Eskiás 1A (104), Garðabæ.
Íbúðin er með sérinngangi, gengið er inn á jarðhæð hússins. Eskiás er í vel staðsettu hverfi og stutt er í alla helstu þjónustu, leik,- og grunnskóla, íþrótta og útivistarsvæði. Staðsetningin er einnig örstutt frá megin ökuleiðum.
Gengið er inn í íbúðina í forstofu með fataskáp, gengið er úr forstofu í sameiginlegt rými íbúðarinnar. Sameiginlegt rými er opið og skemmtilegt þar sem eldhús og stofa mynda eitt alrými. Gengið er út á verönd úr stofu en auk þess er gengið út í sameiginlegan inngarð úr hjónaherbergi íbúðarinnar. Í eldhúsinu er mikið skápapláss og falleg eyja upp við vegg. Allar borðplötur eru úr steini. Aukin lofthæð er í íbúðinni.
Í íbúðinni eru þrjú svefnherbergi með fataskápum. Hjónaherbergið er með fataherbergi en hin tvö svefnherbergin með fataskápum. Náttborð í hjónaherbergi fylgja. Baðherbergið er með upphengdu salerni og sturtu, þar er einnig tengi fyrir þvottavél. Sérgeymsla er innan íbúðar.
Ísskápur (Whirlpool) og uppþvottavél (Miele) fylgja eigninni, auk gardína í öllum herbergjum.
Í sameign er hjóla- og vagnageymsla. Öll bílastæði við Eskiás eru sameiginleg og rafbílahleðslukerfi við sérmerkt bílastæði.
Djúpgámar eru staðsettir við húsin í hverfinu og gert er ráð fyrir fjórflokkun úrgangs. Allar íbúðir eru með aðgengi að inngarðinum þar sem skjólsælt er og einnig eru leiktæki þar fyrir börnin.
Leiguverð og kostnaður: Leiguverð er 425.000 kr á mánuði + rafmagn + hiti og er tengt vísitölu.
Innifalið í leiguverði er rekstur á sameign (hússjóður).
Skilyrði fyrir leigu: (1) Leggja þarf inn umsókn með lánshæfismati og sakavottorði og (2) Trygging eða ábyrgð sem nemur þriggja mánaða leigu.
Fylgifé
Örbylgjuofn
Ísskápur
Uppþvottavél
Geymsla
Svalir
Samningsatriði
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 4 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
425.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
425.000 kr
Tryggingafé
3 mánuðir / 1.275.000 krInnflutningsverð
1.700.000 kr
Leigt út af Finnur