




Sigtún 45
105 Reykjavík
Efri hæð (one bedroom) Rúmgóð 2ja (-3ja) herb. íbúð (v. stór stofa) rétt hjá Ásmundasafni, mjög miðsvæðis í bænum og næg bílastæði. Stutt er í Laugardalinn, Laugar og Laugardalslaugina og þjónustu. (íbúð er tóm núna, ekki svona flott). Anddyri er sameiginlegt með 1.hæð. Íbúð opnast í rúmgóðu anddyri og gott skápapláss. Stofan er stór með smá súð og hægt væri að stúka hana af. Gott útsýni + Góður sameiginlegur garður til suðurs og flottur pallur. Eldhús er stórt og rúmgott með 2 gluggum og útsýni og ágætum innréttingum og mjög góðu skápaplássi. Etv. uppþvottavél fylgir.
Svefnherbergi er um 13 fm. með góðum skápum og 2 gluggum.
Baðherbergi er meðal rúmgott - eldri innréttingar og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Stofa er m. gluggum til austurs, vesturs og suðurs. Stórar svalir sem snúa til suðvesturs með góðu útsýni.
Íbúðin er einkar björt og fín og húsið er fallegt og vel við haldið. Lítið geymsluloft er yfir risi.
Öll ljós fylgja og góð gluggatjöld frá Álnabæ, þmt. myrkvunar.
Aðrir í húsinu:
Húseigandi býr einn á 1.hæð og stundum Airbnb gestir, á jarðhæð 40 ára strákur = Íbúðir eru þrjár og rólegt.
Athugið
a) Óskað er eftir traustum, skilvísum, rólegum og snyrtilegum leigjanda
b) Reyklausum c) Ekki gæludýr
c) Og afsakið einhvern sem talar íslensku eða ensku lýtalaust
d) Ath. einungis eitt svefnherbergi er núna,* og íbúð hentar því ekki þar sem barn er með fasta búsetu.
Íbúðin gæti hentað aðila / Einstakling sem er með barn aðra hvora helgi hjá sér.
Íbúðin er laus frá samkomulagi í lok júlí eða 1.ágúst. Ef umsóknin kemur til greina svara ég email innan c.a. 2ja til 3ja daga eða hringi uppá skoðun. Ég vil taka mér góðan tíma að finna hentugan aðila.
Til greina kemur meiri uppfærsla á íbúð og tækjum.
Verð kr. 310 þús. (ef einn í heimili slæ ég etv. aðeins af).
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Svalir
Geymsla
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 2 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
310.000 kr
3 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
15 júl 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
310.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 620.000 krInnflutningsverð
930.000 kr

Leigt út af Hákon