




Mánastígur 6
220 Hafnarfjörður
Glæsilegt 326 m² einbýlishús á eftirsóttum stað í miðbæ Hafnarfjarðar, í göngufæri við skóla, leikskóla, verslanir og alla helstu þjónustu.
Húsið var endurhannað af innanhússhönnuði árið 2017 og leigist fullbúið með húsgögnum. Eignin býður upp á rúmgóð og björt alrými, tvær stofur, glæsilegt eldhús, þrjú baðherbergi, sauna og einstaklega stórt hjónasvíturými með fataherbergi.
Húsið er skráð með sex svefnherbergjum. Það er nú innréttað með fjórum svefnherbergjum, auk rúmgóðrar skrifstofu sem auðveldlega getur nýst sem svefnherbergi, og sveigjanlegs herbergis sem hentar sem gestaherbergi, barnaherbergi eða vinnurými.
Eignin stendur á stórri og skjólgóðri lóð með fallegum garði, veröndum og stórum trjágróðri. Hiti er í innkeyrslu, útitröppum og helstu gönguleiðum.
Hentar sérstaklega vel fyrir fjölskyldur, stjórnendur á tímabundinni dvöl á Íslandi, sendiráð eða aðra sem leita að vandaðri og vel staðsettri eign.
Leigutími er 12 mánuðir. Möguleiki er á framlengingu fyrir rétta leigjendur.
Athugið að bílskúr fylgir ekki leigunni og verður nýttur af eigendum til geymslu persónulegra muna.
Fylgifé
Þvottavél
Þurrkari
Örbylgjuofn
Ísskápur
Uppþvottavél
Svalir
Með húsgögnum
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 6 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
890.000 kr
Laus frá
20 ágú 2026
Leigutímabil
12 - 24 mánuðir
Fyrsti mánuður
890.000 kr
Tryggingafé
3 mánuðir / 2.670.000 krInnflutningsverð
3.560.000 kr
Leigt út af Einar