




Þingvað 23
110 Reykjavík
Um er að ræða glæsilegt og nýtískulegt 240 fm einbýlishús, byggt árið 2006, auk 40 fm tvöfalds innbyggðs bílskúrs. Húsið er einstaklega vel skipulagt og hentar vel fjölskyldum sem vilja rúmgott og fallegt heimili í friðsælu umhverfi. Í húsinu eru fimm svefnherbergi, tvö baðherbergi og gestasnyrting. Einnig er stórt þvottahús, bjart og opið eldhús sem sameinar borðstofu og stofu á fallegan hátt og skapar einstaklega notalegt alrými. Á efri hæð er opin setustofa í fallegum „turni“ sem gefur húsinu sérstakan karakter. Þar er einnig eitt af svefnherbergjunum ásamt baðherbergi með sturtuklefa. Frá stofu og borðstofu er gengið út á stóran afgirtan pall þar sem njóta má útiveru í skjólsælu og fallegu umhverfi. Á pallinum er heitur rafmagnspottur ásamt lítilli útigeymslu. Húsið stendur á einstaklega friðsælum stað við jaðar byggðar með góðu aðgengi. Þaðan er fallegt útsýni og beinn aðgangur að göngustíg sem liggur upp í Heiðmörk, sem býður upp á einstaka útivist allt árið um kring.
Þeir sem hafa áhuga á húsinu eru beðnir um að taka fram starfsheiti.
Fylgifé
Geymsla
Bílskúr
Uppþvottavél
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
690.000 kr
Laus frá
15 jún 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
690.000 kr
Tryggingafé
3 mánuðir / 2.070.000 krInnflutningsverð
2.760.000 kr
Leigt út af Elina