




Logasalir 10
201 Kópavogur
Frábært fjölskylduhús til leigu í Salahverfinu í Kópavogi. 7 svefnherbergi eru í húsinu og eru þau öll rúmgóð, baðherbergin eru tvö, eitt á neðri hæð og eitt á efri hæð. Bílskúrinn leigist ekki með húsinu, húsið getur leigst út með öllu innbúi.
Neðri hæð: Á jarðhæð er anddyri, samliggjandi stofa og borðstofa, eldhús, gestasalerni, þvottahús og svefnherbergi/skrifstofa með litlu leikhorni. Úr stofu og borðstofu er gengið út á stóra og glæsilega timburverönd með heitumpotti og skjólveggjum. Nánari lýsing: Forstofa: Stór og rúmgóð með ljósum flísum á gólfi og fatahengi. Eldhús: Rúmgott og bjart með fallegri innréttingu úr beyki. Flísar á milli efri og neðri skápa, innbyggð uppþvottavél. Stórir gluggar og plastparket er á gólfi. Stofa og borðstofa: Samliggjandi í stóru og opnu rými. Plastparket á gólfi og stórir gluggar. Útgengi úr borðstofu/stofu á stóran suðurpall með heitum potti og skjólvegg. Hjónaherbergi/Sjónvarpsherbergi: Rúmgott svefnherbergi sem í dag er notað sem sjónvarpsherbergi. Plastparket á gólfi. Barnaherbergi: Rúmgott barnaherbergi sem í dag er notað sem skrifstofa. Plastparket á gólfi. Gestasalerni: Ljósar flísar á veggjum og dúkur á gólfi. Lítil innrétting við vask og sturtuklefi. Þvottahús: Rúmgott með útgengi út á pall austanmegin við húsið og innangengt í bílskúr. Innrétting með hækkun undir þvottavél og þurrkara. Efri hæð: Á efri hæð er mjög stórt hjónaherbergi, fjögur barnaherbergi, alrými/sjónvarpshol og stórt baðherbergi. Geymsluloft er yfir allri hæðinni. Hjónaherbergi: Mjög stórt herbergi eða 37,8 fm með möguleika á að stúka af fyrir fataherbergi. Plastparket á gólfi. Barnaherbergi 1 og 2: Rúmgóð og að hluta til undir súð með lausum hvítum fataskápum sem fylgja eigninni. Barnaherbergi 3: Rúmgott og að hluta til undir súð. Barnaherbergi 4: Rúmgott með útgengi á litlar vestursvalir. Baðherbergi: Mjög stórt með ljósum flísum á veggjum og gólfdúk á gólfi. Hvít innrétting með góðu skápaplássi, hornbaðkar og sturtuklefi.
Fylgifé
Þvottavél
Þurrkari
Örbylgjuofn
Ísskápur
Uppþvottavél
Með húsgögnum
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hundar leyfðir
Kettir leyfðir
Fiskar leyfðir
Mánaðarleiga
730.000 kr
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
730.000 kr
Tryggingafé
3 mánuðir / 2.190.000 krInnflutningsverð
2.920.000 kr
Leigt út af Kristján