




Hjallavegur 46
104 Reykjavík
Þriggja herbergja íbúð til leigu á besta stað í Laugardalnum.
Þriggja herbergja, 85 fermetra íbúð á Hjallavegi, í rólegri og fjölskylduvænni götu. Íbúðin er rúmgóð og björt, er lítið niðurgrafin í þríbýlishúsi með sérinngangi og sameiginlegum garði. Íbúðin skiptist í gang, tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og stofu. Lítil geymsla inni í íbúð og köld geymsla fyrir utan. Íbúðin er fullbúin húsgögnum, svo sem rúmum og fataskápum í báðum herbergjum, sófa, borðstofuborði, þvottavél, þurrkara, uppþvottavél og ísskáp. Hægt er að semja nánar um hvaða húsgögn fylgja íbúðinni. Íbúðin er laus frá og með 1. júlí og þarf að leigjast út fyrir ágúst.
Tryggingar eru samþykktar hvort sem það er í gegnum bankaábyrgð, leiguskjól eða útborgun.
Óska eftir traustum og öruggum leigendum til lengri tíma. Áhugasamir endilega sendið inn umsókn með upplýsingum um ykkur (aldur, starf, fjölskyldugerð o.s.frv.)
Fylgifé
Þvottavél
Þurrkari
Ísskápur
Uppþvottavél
Geymsla
Með húsgögnum
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 4 leigutakar
Fiskar leyfðir
Nagdýr leyfð
Kettir leyfðir
Hundar leyfðir
Fuglar leyfðir
Mánaðarleiga
355.000 kr
3 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
1 júl 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
355.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 710.000 krInnflutningsverð
1.065.000 kr
Leigt út af Gunnar