




Grettisgata 46
101 Reykjavík
Björt og rúmgóð íbúð á eftirsóttum stað í hjarta miðbæjarins sem er kjörin fyrir par. Íbúðin er á 2. Hæð í snyrtilegu fjölbýlishúsi, með góðri lofthæð í öllum rýmum og fallegum loftlistum og rósettum sem setja hlýlegan svip á heimilið.
Það sem einkennir íbúðina:
- Rúmgóð og björt stofa með gegnheilu, olíubornu eikarparketi og stórum suðurgluggum.
- Stórt svefnherbergi með parketi og rúmgóðum fataskáp með rennihurðum.
- Yndislegar suðursvalir í fullkomnu skjóli, sem snúa inn í lokað port hússins.
- Nær öll dagleg þjónustu í göngufæri: matvöruverslun, sundlaug, almenningssamgöngur, skólar og allt mannlífið í miðborginni.
Íbúðin er laus til langtímaútleigu strax og er leigð án húsgagna.
Verð: 355.000 krónur á mánuði (verðtryggt)
Forstofugangur:
Náttúruflísar á gólfi og snyrtilega frágengin aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara í skáp.
Eldhús:
Nýleg innrétting með gaseldavél, náttúruflísar á gólfi og flísar milli skápa, gluggi til norðurs. Gæða ísskápur og uppþvottavél fylgja íbúðinni.
Stofa og borðstofa:
Björt rými með gegnheilu eikarparketi, stórum suðurgluggum og útgengi á svalir. Hægt er að loka af annað rýmið og nota sem annað svefnherbergi.
Svefnherbergi:
Er stórt og bjart með parketi á gólfi. Góður klæðaskápur með rennihurðum. Gluggi til norðurs.
Baðherbergi:
Flísalagt í hólf og gólf með marmaraflísar á gólfi. Salernið er upphengt með innfelldum kassa, sturtan er rúmgóð og kröftug og þá er innfelld halogenlýsing í lofti og sjarmerandi næturlýsing við gólfið.
Geymsla:
Sér geymsla um 5 fermetra fylgir íbúðinni. Geymslan er í kjallara.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Geymsla
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
355.000 kr
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
355.000 kr
Tryggingafé
3 mánuðir / 1.065.000 krInnflutningsverð
1.420.000 kr
Leigt út af Magnús