



Áshamar 54
221 Hafnarfjörður
Til leigu björt og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð við Áshamar 54 í Hafnarfirði. Íbúðin er 81,2 fm (með geymslu) og staðsett á 4. hæð í nýlegu fjölbýlishúsi með lyftu.
Íbúðin skiptist í rúmgott alrými með eldhúsi, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottaaðstöðu. Úr alrýminu er gengið út á svalir. Á gólfum er parket sem gefur íbúðinni hlýlegt og snyrtilegt yfirbragð.
Íbúðin leigist með helstu heimilistækjum. Ísskápur, þvottavél og þurrkari fylgja með. Eldhúsið er nútímalegt og með góðu skápaplássi, og skipulagið hentar vel fyrir par, einstakling eða litla fjölskyldu.
Húsið er staðsett í Hamranesi, nýju og rólegu íbúðahverfi í Hafnarfirði. Stutt er í leikskóla, skóla, útivistarsvæði og gönguleiðir. Góðar samgöngur eru frá hverfinu og auðvelt að komast inn á helstu stofnæðar.
Íbúðin er snyrtileg, björt og vel staðsett í nýju hverfi sem er í mikilli uppbyggingu.
Ýttu á hlekkinn til að sjá íbúðina betur: https://drive.google.com/file/d/1Lj8378nUwylvc3FAZnZYI2coN-mNCBUx/view?usp=sharing
(Gæludýr koma til greina eftir nánara samkomulagi.)
Fylgifé
Þvottavél
Þurrkari
Ísskápur
Uppþvottavél
Svalir
Geymsla
Samningsatriði
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 4 leigutakar
Hundar leyfðir
Fiskar leyfðir
Kettir leyfðir
Nagdýr leyfð
Mánaðarleiga
365.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Laus frá
7 sep 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
365.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 730.000 krInnflutningsverð
1.095.000 kr
Leigt út af Steinunn Thalia Jónsdóttir Claessen