




Hallgerðargata 3
105 Reykjavík
Falleg og mjög snyrtileg 65fm Íbúð til leigu - laus 1 júní.
Til leigu er einstaklega falleg og vel skipulögð 65fm íbúð með einu svefnherbergi. Íbúðin er björt, nútímaleg og afar snyrtileg með fallegum innréttingum og hlýlegu yfirbragði.
Anddyri með góðum fataskáp. Í opnu alrými er rúmgóð stofa með gólfsíðum gluggum og útgengi út á verönd og inn í inngarðinn. Eldhús er samhliða stofunni í góðu flæði, þar er falleg innrétting með viðaráferð, vönduð eldhústæki, spanhelluborð, ofn, vifta, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Svefnherbergi með góðum fataskáp sem nær uppí loft.
Baðherbergið er rúmgott og vel innréttað, þar er góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara, innrétting með steinplötu, stór walk-in sturtuklefi með innbyggðum blöndunartækjum, upphengt salerni, handklæðaofni og flísalagt er í hólf og gólf. Borðplötur innréttinga eru úr kvartsteini.
Gólfhitakerfi er í íbúðinni og njóta gólfsíðir gluggar sín mjög vel bæði í stofu og svefnherbergi íbúðarinnar.
Hægt er að leigja með húsgögnum eða án.
📍Reykjavík 105
🗓️ Laus frá 1. júní
🚭 Reykingar ekki leyfðar
📝 2 mánaðar trygging skilyrði
Áhugasamir mega senda skilaboð með stuttri kynningu á sér.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Þurrkari
Þvottavél
Samningsatriði
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
380.000 kr
7 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
1 jún 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
380.000 kr
Tryggingafé
3 mánuðir / 1.140.000 krInnflutningsverð
1.520.000 kr
Leigt út af Máni Hilmarsson