




Hávallagata 17
101 Reykjavík
Björt, rúmgóð og nýuppgerð 43 fm stúdíóíbúð á rólegum stað í gamla Vesturbænum, nálægt Hússtjórnarskólanum og Landakotstúni. Hentar vel fyrir einstakling.
Íbúðin er með sér inngangi og góðum gluggum og er leigð út með húsgögnum og tækjum. Nýuppgert eldhús og baðherbergi með sturtu og þvottavél.
Komið er inn í anddyri með spegli og plássi fyrir yfirhafnir, þaðan er gengið inn á nýlega uppgert baðherbergi með sturtu ásamt þvottavél. Frá anddyri er gengið inn í alrými með nýlegri eldhúsinnréttingu. Eldhúsið er vel búið með ísskáp, örbylgjuofni, helluborði, bakaraofni og litlu eldhúsborði ásamt stólum. Þaðan tekur við stofu rými með góðum sófa og sófaborði, fataskáp og kommóðu. Innst í íbúðinni er stórt rúm ásamt kommóðu. Hægt að er að stúka rýmið af til að útbúa herbergi. Skilrúm eru til staðar.
Íbúðin er í stuttu göngufæri frá allri helstu þjónustu og strætóstöðvum. Háskóli Íslands 15 mín. Lækjartorg 10 mín. Sundlaug Vesturbæjar 10 mín.
Fylgifé
Þvottavél
Örbylgjuofn
Ísskápur
Eldhús
Með húsgögnum
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 2 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
290.000 kr
46 umsóknir hafa verið sendar
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
290.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 580.000 krInnflutningsverð
870.000 kr
Leigt út af Dröfn Sigurðardóttir