




Álfheimar 19
104 Reykjavík
Vel skipulögð, opin og björt 77,8fm, 3ja herbergja íbúð að Álfheimum 19, 104 Reykjavík. Eignin er á neðstu hæð með sérinngangi í fallegu og vel viðhöldnu fjórbýlishúsi. Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, baðherbergi, 2 rúmgóð svefnherbergi og geymslu sem er innan íbúðar. Eignin er einnig til sölu og verður það áfram. Leigusamningur er ótímabundinn með 4 mánaða uppsagnarfresti.
Bókið skoðun hjá Hreiðari Levý, lögg. fasteignasala, hreidar@betristofan.is
Forstofa: Gengið innum sérinngang. Flísalögð og með fatahengi. Stofa: Björt, rúmgóð og opin stofa, samliggjandi eldhúsi. Eldhús: Eldhúsið er opið við stofurýmið. Innrétting með neðri og eftir skápum, flísar á milli skápa. Gott skápa og vinnupláss. Eldavél með helluborði, háfur fyrir ofan helluborð. Aðstaða fyrir ísskáp og uppþvottavél. Geymsla: Innan eignar. Gengið í geymslu úr stofu. Svefnherbergi I: Innaf stofu. Afar rúmgott með þreföldum fataskáp með rennihurðum. Gangur: Innaf stofu. Gengið í baðherbergi og barnaherbergi úr gangi. Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með upphengdum vaski og spegli fyrir ofan vask. Upphengdur skápur. Baðkar með sturtuaðstöðu. Gluggi með opnanlegu fagi. Svefnherbergi II: Rúmgott barnaherbergi.
Sameign: Íbúðinni fylgir aðgengi að sameiginlegu þvottahúsi á hæðinni, innangengt í sameign úr íbúðinni.
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús í kjallara þar sem hver íbúð hefur tengi fyrir þvottavél. Garður: Stór sameiginlegur garður báðum megin við húsið.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Örbylgjuofn
Geymsla
Með húsgögnum
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 4 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
300.000 kr
139 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
15 maí 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
300.000 kr
Tryggingafé
1 mánuður / 300.000 krInnflutningsverð
600.000 kr
Leigt út af Hreiðar Levy Guðmundsson