




Blönduhlíð 31
105 Reykjavík
Til leigu er 82,2 m², 3ja herbergja íbúð í Hlíðunum, á frábærum stað í grónu og notalegu hverfi.
Íbúðin er nýmáluð, björt og með parketi á gólfum. Hún hefur sérinngang og sérgeymslu og býður upp á notalegt heimili á eftirsóttum stað í Reykjavík.
Hægt er að óska eftir styttra leigutímabili en þó að lágmarki 3 mánuði. Íbúðinni fylgir ísskápur með frysti og þvottavél.
Staðsetningin er einstaklega góð, en Hlíðaskóli og Menntaskólinn við Hamrahlíð (MH) eru í göngufæri. Einnig er stutt í útivistarsvæði á borð við Klambratún og Öskjuhlíð, auk þess sem miðbær Reykjavíkur er í þægilegri fjarlægð.
Óskað er eftir ábyrgum leigjendum sem ganga vel um. Við leigusamning er farið fram á tryggingu sem nemur eins mánaðar leigu eða bankaábyrgð.
Fylgifé
Geymsla
Þvottavél
Ísskápur
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Hámark 3 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
340.000 kr
2 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
11 nóv 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
340.000 kr
Tryggingarfé
1 mánuður / 340.000 krInnflutningsverð
680.000 kr
Leigt út af Jóna Lísa Gísladóttir