




Flúðabakki 5A
540 Blönduós
-= Sækja þarf um á briet.is =- -= You need to apply at briet.is =-
Til leigu 3ja herbergja, 98,7 m² íbúð í raðhúsi við Flúðabakka 5 á Blöndósi.
Ný 3 herbergja íbúð í enda í raðhúsi ásamt geymslu. Íbúðin samanstendur af rúmgóðu anddyri, samliggjandi stofu og eldhúsi, svefnherbergjum og baðherbergi. Ljóst parket er fljótandi um íbúðina fyrir utan baðherbergi og anddyri sem eru með flísum. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara inn á baðherbergi. Gólfhiti er í íbúð með hitastillum í hverju rými.
Anddyrið er rúmgott með skápum og flísum á gólfi. Eldhúsið er opið inn í stofu með góðu gluggaplássi og útsýni. Innréttingar eru ljósar ásamt borðplötu. Spanhelluborð, ískápur, uppþvottavél, ofn og háfur. Svefnherbergin eru 2 með parket á gólfi. Hjónaherbergi er með góðu skápaplássi. Baðherbergi er með flísum á gólfi og rakaþolni klæðningu á veggjum. Ljósar innréttingar og gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara. Upphengt salerni og hert sturtugler fyrir sturtu. Vifta er í baðherbergi. Gengið er inn í baðherbergi frá anddyri og hjónaherbergi. Verönd snýr í suður og er með timburfjölum. Tvö bílastæði fylgja íbúðinni.
Leigufjárhæð er tengd vísitölu neysluverðs. Hiti og rafmagn er ekki innifalið í leigu.
Leigusamningur er ótímabundinn.
Gæludýrahald er óheimilt.
Leggja þarf fram tryggingu sem nemur 2ja mánaða leigu, sem getur verið í formi bankaábyrgðar, tryggingarfé lagt inn á leigusala, leigugreiðslu- og viðskilnaðartrygging sem leigjandi kaupir hjá viðurkenndu tryggingafélagi.
Ekki er hægt að skoða eign nema af myndum á netinu, nema fyrir þann aðila sem fær íbúðina úthlutaða til leigu, hann getur þó neitað henni eftir skoðun.
Fylgifé
Geymsla
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
255.000 kr
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
255.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 510.000 krInnflutningsverð
765.000 kr
Leigt út af Leigufélagið Bríet