




Faxatún 29
210 Garðabær
Mjög falleg 40 m² stúdíóíbúð til leigu í Garðabæ – Sérinngangur og bílastæði
Björt, falleg og vel skipulögð 40 m² stúdíóíbúð á einbýlishúsalóð í Garðabæ, íbúðin er í viðbyggingu við einbýlishús (ekki bílskúr). Íbúðin er með sérinngangi og sérbílastæði beint fyrir utan. Hverfið er rólegt og gott á frábærum stað miðsvæðis í Garðabæ.
Athugið: Íbúðin er í dag innréttuð sem Airbnb-íbúð, eins og myndirnar sýna (180 cm rúm og 120 cm svefnsófi). Stofan virkar því minni á myndunum en hún er í raun og veru.
Íbúðin er með einföldu eldhúsi með ísskáp/frysti, ofni, örbylgjuofni og helluborði.
Komið er inn í anddyri með skápaplássi. Þaðan er gengið inn í eldhús sem er aðskilið frá stofu og svefnrými með einföldum vegg. Stofan og svefnrýmið eru í sama rými.
Baðherbergið er mjög rúmgott með baðkari, sturtu, góðu skápaplássi og þvottavél sem fylgir íbúðinni.
Stutt er í alla helstu þjónustu við Garðatorg og Litlatún (þar sem Hagkaup er), svo sem matvöruverslanir, veitingastaði, kaffihús, apótek, heilsugæslu, sundlaug og fleira. Allt er þetta í göngufæri.
Mjög góðar almenningssamgöngur eru á svæðinu. Strætóstoppistöð við Aktu Taktu er rétt hjá, með strætóleiðum í allar áttir.
Leiguskilmálar:
- Leiga: 250.000 kr. á mánuði, hiti og rafmagn innifalið.
- Ísskápur og þvottavél fylgja íbúðinni.
- Hægt er að leigja íbúðina með húsgögnum eftir samkomulagi.
- Trygging: Tveggja mánaða leiga.
- Hægt er að sækja um húsaleigubætur.
- Bæði skammtíma- og langtímaleiga kemur til greina.
Leitað er að reglusömum, rólegum og ábyrgum einstaklingi sem gengur vel um íbúðina. Íbúðin hentar ekki barnafólki.
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð og meðmæli frá fyrri leigusala.
Fylgifé
Þvottavél
Örbylgjuofn
Ísskápur
Svalir
Samningsatriði
Hiti og rafmagn
Internet ekki innifalið
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Húsreglur
Hámark 2 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
250.000 kr
28 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
10 okt 2026
Leigutímabil
3 - 12 mánuðir
Fyrsti mánuður
250.000 kr
Tryggingarfé
2 mánuðir / 500.000 krInnflutningsverð
750.000 kr
Leigt út af Rakel Mánadóttir