




Skipholt 51
105 Reykjavík
Björt og rúmgóð þriggja herbergja (2 svefnherbergi, fataherbergi og stór stofa, 89 fermetrar) íbúð til leigu staðsett miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Íbúðin skiptist í eldhús, 2 svefnherbergi, fataherbergi, stofu, rúmgóðar svalir og klósett þar sem er sturta og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Í kjallara er sameiginleg þvottavél (ókeypis að þvo) og aðstaða til að hengja upp þvott. Í íbúðinni er mikið skápapláss og gott útsýni til austurs úr herbergjum og eldhúsi, og til vesturs úr stofu og af svölum. Stór garður tilheyrir húsinu með rólum, sandkassa, litlu húsi og trampólíni. Í stofu og herbergjum er parket, flísar í baðherbergi og dúkur á eldhúsgólfi.
Íbúðin er staðsett miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu og er stutt í alla þjónustu. Á móti húsinu er fiskbúð og kjötbúð og í 5-10 mínútna fjarlægð eru tvær matvöruverslanir (Bónus og Nettó) auk Kringlunnar. Einnig eru 2 grunnskólar (Ísaksskóli og Háaleitisskóli), leikskóli (Stakkaborg) og Kennaraháskólinn í 1-5 mínútna göngufjarlægð. Um það bil 10 mínútna göngufjarlægð á Klambratún og Hlemm og um 15-20 mínútna gangur í miðbæ Reykjavíkur.
Í íbúðinni eru rúm, sófar, leirtau og annað sem hægt er að leigja með sé þess óskað án aukagjalds. Einnig er ísskápur og uppþvottavél í eldhúsi, nýtt spanhelluborð og bökunarofn í góðu standi. Öflugt húsfélag og góðir nágrannar.
Tvisvar á ári þarf hver íbúð að sjá um ruslageymslu í 7-10 daga í senn, skipta um ruslatunnur annan hvern dag. - Þrif á sameign
Íbúðin er laus frá 15. september eða samkvæmt samkomulagi. Leiga hvers mánaðar er borguð fyrirfram, 1. hvers mánaðar. Óskað er eftir 2 mánaða tryggingu, sveigjanlegt hvort það sé bankaábyrgð eða annars konar trygging.
Óskað er eftir meðmælum frá fyrri leigusala. Er opinn fyrir langtímaleigu en einnig styttri leigutíma sé þess óskað.
Áætlaður kostnaður fyrir hita og rafmagn Rafmagn: 11000 Hiti: 5000
Fylgifé
Örbylgjuofn
Ísskápur
Uppþvottavél
Svalir
Þvottavél
Samningsatriði
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 4 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
370.000 kr
Laus frá
15 sep 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
370.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 740.000 krInnflutningsverð
1.110.000 kr
Leigt út af Ólafur Páll Árnason