




Hraunbær 26
110 Reykjavík
Björt og falleg tveggja svefnherbergja íbúð til leigu
Björt og rúmgóð tveggja svefnherbergja íbúð á annarri hæð í snyrtilegri og vel við haldinni fjölbýlishúseign.
Íbúðin skiptist í eitt rúmgott hjónaherbergi og eitt minna svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og bjarta og notalega stofu með útgengi út á svalir. Rúmgóðir fataskápar eru bæði í stóra svefnherberginu og á ganginum.
Dýr eru leyfð í íbúðinni. Íbúar hafa jafnframt aðgang að stórum sameiginlegum garði og hjólageymslu.
Íbúðin hentar einstaklega vel fyrir einstakling, par eða litla fjölskyldu sem leitar að björtu, þægilegu og heimilislegu húsnæði.
Áhugasamir eru hvattir til að senda inn umsókn ásamt stuttu kynningarbréfi þar sem fram koma upplýsingar um umsækjendur, hverjir hyggjast búa í íbúðinni og fyrirhugaðan leigutíma. Einnig er óskað eftir meðmælendum, helst frá fyrri leigusölum.
Möguleiki er á að flytja fyrr inn eftir samkomulagi.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Rafmagn ekki innifalið
Internet ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 4 leigutakar
Hundar leyfðir
Kettir leyfðir
Fiskar leyfðir
Fuglar leyfðir
Nagdýr leyfð
Mánaðarleiga
370.000 kr
Laus frá
1 feb 2027
Leigutímabil
12 mánuðir
Fyrsti mánuður
370.000 kr
Tryggingarfé
600.000 krInnflutningsverð
970.000 kr
Leigt út af Hulda María Valgeirsdóttir