




Vesturberg 78
111 Reykjavík
Falleg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á efstu hæð með einstaklega fallegu útsýni í góðu lyftuhúsi. Eignin skiptist í forstofu, svefnherbergi, eldhús og stofu. Rúmgóð forstofa með fataskáp og fatahengi. Flísar á gólfi. Mjög björt og vel skipulögð stofa með góða aðstöðu fyrir borðstofu. Flísar á gólfi. Frá stofu er útgengt út á stórar og góðar svalir með einstöku útsýni. Eldhús með fallegri og nýlegri eldhúsinnréttingu ásamt nýlegum eldunartækjum. Gott skápapláss og möguleiki fyrir uppþvottavél. Flísar á gólfi. Rúmgott svefnherbergi með góðum fataskáp. Harðparket á gólfi. Mjög snyrtilegt og fallegt baðherbergi með nýlegri innréttingu, sturtuklefa og upphengdu salerni. Flísar á gólfi. Tengi er fyrir þvottavél. Sameiginlegt þvottahús á hverri hæð innan sameignar. Á hverri hæð er hjóla og vagnageymsla innan sameignar. Íbúðin er öll nýlega uppgerð. Allir veggir nýlega spartlaðir og málaðir. Snyrtileg sameign.
Fylgifé
Ísskápur
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 3 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
300.000 kr
15 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
1 feb 2026
Leigutímabil
13 - 14 mánuðir
Fyrsti mánuður
300.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 600.000 krInnflutningsverð
900.000 kr
Leigt út af Heimir