




Möðrufell 3
111 Reykjavík
Anddyrið er með parket á gólfi og stórum skápum og leiðir inn í hol sem tengir önnur rými eignar. Eldhúsið er rúmgott með nýlegri fallegri innréttingu og góðum eldhúskrók. Flísar á gólfi og gluggi til austurs. Stofan og borðastofan mynda opið og bjart rými með gólfsíðum gluggum, parket á gólfi og útgengt á svalirnar til vesturs. Svalirnar eru inndregnar og skjólasælar. Snúa til vesturs með góðu útsýni. Baðherbergið er með nýlegum sturtuklefa, dúk á gólfi og aðstöðu fyrir þvottavél með efri skápum. Svefnherbergi I er rúmgott með parket á gólfi, stórum fataskápum og glugga til austurs. Svefnherbergi II er með parket á gólfi og glugga til austurs. Glæsilegt útsýni er til vesturs og austurs úr íbúðinni. Geymsla á jarðhæð Sameignilegt þvottahús og þurrkherbergi á jarðhæð. Hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð Merkt bílastæði á lóð.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Geymsla
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 4 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
300.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Laus frá
1 okt 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
300.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 600.000 krInnflutningsverð
900.000 kr
Leigt út af Kristófer Ari Óskarsson