




Haukahlíð 1
102 Reykjavík
Frábær þriggja herbergja íbúð til leigu. Íbúðin er á 4. hæð, nýtur sólar yfir daginn og er með útsýni af stofusvölum inn í inngarð. Íbúðin er í göngufæri við miðbæinn.
Nánari lýsing: Komið inn í anddyri með skápum. Inn af anddyri er baðherbergi með sturtu og fallegri innréttingu og þvottavél (pláss fyrir þurrkara). Eldhús er opið inn í bjarta stofu og er með vandaðri innréttingu og tækjum (ísskápur með frysti, ofn, eldavél, uppþvottavél). Hjónaherbergi með fataskáp. Barnaherbergi með fataskáp.
Til boða er að leigja íbúðina með 3x90cm rúmum, eldhúsborði+4 stólum, kommóðu, litlu skrifborði með stól svo og 3ja sæta sófa í stofu.
Í kjallara er sér geymsla (12,2 fm) sem getur rúmað hluta ofangreindra húsgagna eftir þörfum auk annars. Að auki er stæði í bílakjallara.
Íbúðin er laus frá og með 1. ágúst. Þriggja mánaða trygging. Hiti, rafmagn og hússjóður er innifalið í uppgefnu leiguverði.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Svalir
Geymsla
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Kettir leyfðir
Mánaðarleiga
370.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Laus frá
1 ágú 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
370.000 kr
Tryggingafé
3 mánuðir / 1.110.000 krInnflutningsverð
1.480.000 kr
Leigt út af Þórhildur Þórarinsdóttir