




Langholtsvegur 20
104 Reykjavík
- Falleg risíbúð í þríbýli
- Fjölskylduvænt hverfi
- Góðir nágrannar
- Hundur í kjallaraíbúð
Gengið inn sameiginlegan inngang og upp teppalagðan stiga. Stigapallur fyrir framan íbúð með fataskáp. Komið er inn í stofu með parketi. Eldhús er með U-laga innréttingu, efri og neðri skápum og borðkrók. 2 gluggar eru í eldhúsi, lítill búrskápur er inn af eldhúsi sem og kústaskápur. Léttur veggur er milli eldhúss og stofu sem gefur möguleika á að gera þetta að stóru góðu alrými. Stofan er rúmgóð með góðum gluggum, gengið út á svalir. Virkilega sjarmerandi franskur gluggi í stofunni. 2 svefnherbergi. Hjónaherbergið er með fataskápum og parketi. Barnaherbergi er með parketi, það er tekið úr stofunni og möguleiki á að stækka það til muna. Baðherbergi var endurnýjað fyrir ca 10 árum, það er flísalagt í hólf og gólf, baðkar og gluggi.
Utangengt í sameign. Sameiginlegt þvottahús og hver með sína vél. Sérgeymsla undir stiga fylgir eigninni.
Staðsetning og nærumhverfi Eignin er staðsett á mjög góðum stað og mjög stutt að fara í allar áttir. Holtagarðar, Laugardalurinn sem og Skeifan eru stutt frá. Einnig er stutt í Elliðaárdalinn sem er eitt stærsta græna svæðið í þéttbýliskjarna Reykjavíkur, þar eru skemmtilegar gönguleiðir, Elliðaárdalurinn er mjög vinsæll til útivistar og íþróttaiðkunar.
Fylgifé
Geymsla
Svalir
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 3 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
320.000 kr
90 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
10 des 2025
Leigutímabil
12 mánuðir
Fyrsti mánuður
320.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 640.000 krInnflutningsverð
960.000 kr
Leigt út af Kristín Sverrisdóttir