




Miðhraun 22
210 Garðabær
Um er að ræða skrifstofuhúsnæði á 2.hæð að Miðhrauni 22 í Garðabæ.
Húsnæðið er vel staðsett og stutt í alla helstu þjónustu auk helstu umferðaræða. Rýmið skiptist í stórt alrými með litlum eldhúskrók, en þar er vaskur, innbyggður ísskápur og innibyggð uppþvottavél. Rýminu tilheyrir sér salerni og geymsla, hvorutveggja einnig staðsett á 2.hæð hússins.
Húsnæðið er almennt snyrtilegt og vel frágengið, mikið um rafmagnstengla. Malbikað plan er hringinn í kringum húsið og næg bílastæði í sameign. Samkomulag verður gert um nánari frágang við leigutöku, s.s. varðandi málningu rýmis o.þ.h. Leigusali mun koma fyrir vélrænu loftskiptakerfi fyrir rýmið.
Leiguverð og skilmálar Mánaðarleiga er 210.000 kr. og nemur trygging 2 mánuðum. Lágmarksleigutími er 3 mánuðir. Innifalið er hiti, rafmagn og almenn húsgjöld. Leigjandi greiðir fyrir internet.
Áhugasamir geta sent fyrirspurn til að fá frekari upplýsingar eða bóka skoðun.
Fylgifé
Uppþvottavél
Geymsla
Ísskápur
Eldhús
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
210.000 kr
Laus frá
1 des 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
210.000 kr
Tryggingarfé
2 mánuðir / 420.000 krInnflutningsverð
630.000 kr
Leigt út af Benjamín Ingi Böðvarsson