




Bergstaðastræti 10A
101 Reykjavík
Íbúð til leigu í hjarta miðbæjarins - laus strax.
Til leigu: 3 herbergja, 76 fm íbúð við Bergstaðastræti í 101 Reykjavík - laus við fyrsta tækifæri fram á næsta sumar. Íbúðin er einstaklega björt, á þriðju (efstu) hæð í hornhúsi og nýuppgerð að öllu leyti. Íbúðin er í mínútna göngufjarlægð frá matvöruverslun Krónunnar og öllum helstu kennileitum miðbæjarins.
Eignin samanstendur af 2 svefnherbergjum, forstofu, ný uppgerðu baðherbergi með nýrri sturtu (ásamt þvottavél/þurrkara) og rúmgóðri stofu með opnu eldhúsi og svölum. Öll helstu heimilistæki fylgja íbúðinni og helstu húsgögn, áhöld og borðbúnaður geta fylgt eftir samkomulagi.
Leiguverð er 395.000kr á mánuði og er rafmagn, hiti og hússjóður innifalið í því. Íbúðin er leigð út í 3-8 mánuði eftir samkomulagi og er farið fram á meðmæli ásamt 2 mánaða tryggingu. Aðeins reyklausir einstaklingar koma til greina. Gæludýr eru leyfð eftir samkomulagi. Lengd leigu er ákveðin í frekara samtali.
Nánari upplýsingar í skilaboðum.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Svalir
Þurrkari
Þvottavél
Eldhús
Samningsatriði
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Kettir leyfðir
Mánaðarleiga
395.000 kr
23 umsóknir hafa verið sendar
Leigutímabil
2 - 8 mánuðir
Fyrsti mánuður
395.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 790.000 krInnflutningsverð
1.185.000 kr
Leigt út af Tómas Viðar