




Selásbraut 108
110 Reykjavík
Ath myndir af syningaríbúð//NOTE PICTURES ARE OF DIFFERENT APARTMENT
Íbúð 304 er glæsileg tveggja herbergja íbúð á 3. hæð með sérmerktu stæði á lóð. Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin 61,3 fm, þar af er geymsla í kjallara 7,9 fm. Útgengt á 14,2 fm svalir. Við hönnun hússins er tekið mið af því að lágmarka viðhald. Húsið er einangrað að utan með álklæðningu í tveimur mismunandi litum og gluggar eru úr ál-tré. Helstu atriði við frágang innandyra:
Innréttingar frá Voke III Borðplötur í eldhúsi eru almennt úr 20 mm þykkum HPL (high pressure laminate) með dökku yfirborði. Á baðherbergjum eru borðplötur úr hvítum Durastone með samlímdum vaski. Eldhústæki frá AEG, spanhelluborð, ofn, uppþvottavél, háfur og ísskákpur. Gólf baðherbergja og þvottahúsa eru flísalögð með 60 x 60 cm flísum frá Agli Árnasyni. Hvítar innihurðir frá Agli Árnasyni. Hús klætt að utan með vandaðri báruálklæðningu frá Málmtækni. Gluggar og svalahurðir eru úr ál-tré frá Húsasmiðjunni. Allt gler er K gler eða sambærilegt skv. byggingarreglugerð. Blöndunartæki eru frá Grohe. Nánari lýsing: Anddyri: Fataskápur upp í loft. Eldhús: Falleg innrétting með spanhelluborði, innfelldur ísskápur og uppþvottavél, bakaraofn. Útgengt út á svalir frá rýminu. Stofa/borðstofa: Í samliggjandi rými með eldhúsi. Opið og bjart rými. Útgengt út á svalir. Hjónaherbergi: Rúmgott með fataskáp upp í loft. Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum að hluta, upphengt salerni, sturta með glerskilrúmi, innrétting undir og við handlaug, handklæðaofn og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Þvottahús: Flísar eru á þvottahúsi sem er sér og gengið í frá forstofu. Innrétting er fyrir þvottavél og þurrkara með skúffum undir og skápum yfir vélum. Svalir: Útgengt er út á 14,2 fm svalir. Geymsla: Er í sameign í kjallara 7,9 fm.
Myndir eru af sýningaríbúð
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Geymsla
Eldhús
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 2 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
325.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Laus frá
1 des 2026
Leigutímabil
12 mánuðir
Fyrsti mánuður
325.000 kr
Tryggingafé
3 mánuðir / 975.000 krInnflutningsverð
1.300.000 kr
Leigt út af Eyþór Logi Þorsteinsson