
Bakkastígur 5
101 Reykjavík
Gengið er inn bakatil með sérinngangi. Tvær tröppur niður. Íbúðin er mubluð. Bæði húsgögn og áhöld. Íbúðin leigist frá 15. águst 2026 til 1. júní 2027. Flísalagt anddyri með rúmgóðum manngengum fataskáp innaf. Þá tekur við gangur, sem leiðir fyrst til herbergja sitt hvorum megin og síðan til baðherbergis og þvottahúss og endar loks í opnu rými með eldhúsi og stofu. Á ganginum eru gólfflísar og opna rýminu er plastparket. Eldhúsið er með opinni innréttingu með steinplötu, uppþvottavél & barborði með sæti fyrir þrjá. Stærra herbergið er með gólfdúk, góðum fataskápum og queen stærð hjónarúmi. Minna herbergið er með gólfdúk, litlum fataskáp og 120 cm rúmi. Baðherbergið er lítið með flísum á gólfi og í sturtuhorni, einnig lítil innrétting. Þvottahúsið er með hitagrind hússins, en er sér þvottahús fyrir þessa íbúð. Garðurinn er snyrtilegur með háu grindverki, palli á hluta, grasi á hluta og gróðri á hluta.
Ísskápur, uppþvottavél, örbylgjuofn, blandara, brauðrist, ketil & þvottavél fylgir. Góð rúm í herbergjum með vönduðum heilsudýnum fylgja. Í stofu er sófi, borð, kommóða og sjónvarp. Barstólar, aukaborð og stólar fylgja í eldhúsi. Í eldhúsi er einnig borðbúnaður fyrir 6 manns; diskar, glös, hnífapör, áhöld og pottar. Ljós og gardínur fylgja. Flest heimilistæki eru nýleg.
Fylgifé
Ísskápur
Örbylgjuofn
Uppþvottavél
Þvottavél
Geymsla
Eldhús
Með húsgögnum
Hiti og rafmagn
Hiti ekki innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 3 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
360.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Laus frá
15 ágú 2026
Leigutímabil
9 mánuðir
Fyrsti mánuður
360.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 720.000 krInnflutningsverð
1.080.000 kr
Leigt út af Auður Sigríður Kristinsdóttir