

Hringbraut 74
101 Reykjavík
HERBERGI til leigu í íbúð sem deilt er með einni annarri manneskju.
Bara í boði fyrir einstakling (engin pör).
Tímabil: 21.september-31.desember
Herbergið er 7,8 fm og leigist með húsgögnum: 120cm rúm, fataslá, kommóða og skrifborð.
Sameiginleg rými: Eldhús, stofa og baðherbergi.
Ein önnur manneskja býr í íbúðinni. Íbúðin er 60 fm.
Íbúðin er nýuppgerð í fjögurra íbúða rólegum stigagangi. Hún er á annarri hæð, með stórum gluggum sem gerir íbúðina bjarta. Það er viðarparket á gólfum. Í eldhúsinu eru allar nauðsynjar; pottar, pönnur, diskar, skálar, hnífapör, eldavél með ofni, uppþvottavél, stór ísskápur og stórt borðstofuborð. Í stofunni er þægilegur sófi, hengistóll, spil, kerti og bækur. Baðherbergið er bleikt og krúttlegt með nýju baðkari, klósetti og vaski. Þvottaherbergi og þurrkherbergi er í kjallara með þvottavél sem tilheyrir íbúð.
Herbergið sjálft snýr út að Hringbraut og því heyrist smá umferðarniður á daginn, sérstaklega ef glugginn er opinn. Það er þó þrefalt gler svo ef glugginn er lokaður heyrist ekki mikið.
Íbúðin er staðsett í hjarta vesturbæjarins, mitt á milli miðbæjarins og Vesturbæjarlaugar. Strætó 13 og 15 stoppa beint fyrir utan og það er alltaf hægt að finna Hopp nálægt. 4 mínútna labb í Vesturbæjarlaug og Melabúðina, 10 mínútna labb í miðbæinn og 15 mínútna labb í Bónus, Krónuna og Háskóla Íslands.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Þvottavél
Sameiginlegt eldhús
Með húsgögnum
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 1 leigutaki
Aðeins konur leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
150.000 kr
Laus frá
21 sep 2026
Leigutímabil
1 - 3 mánuðir
Fyrsti mánuður
150.000 kr
Tryggingafé
1 mánuður / 150.000 krInnflutningsverð
300.000 kr
Leigt út af Steiney Skúladóttir