




Sólvallagata 13
101 Reykjavík
Til leigu er kjallaraíbúð í virðulegu húsi á Sólvallagötu í Vesturbæ Reykjavíkur. Mjög stutt að ganga í miðbæ og í Háskóla Íslands, Þjóðarbókhlöðu, KaffiVest, Vesturbæjarsundlaug, Melabúð o.fl. Íbúðin hentar fyrir 1 eða 2 einstaklinga, til dæmis fyrir ungt par eða einstakling t.d. nema í háskóla- eða framhaldsskólanámi. Íbúðin er með gömlum innréttingum eins og sjá má á myndum. Eldhúsinnrétting upprunaleg. Ný heimilistæki fylgja með: Nýr ísskápur, ný uppþvottavél, ný þvottavél, nýr þurrkari fylgja íbúðinni. Einnig fylgja með eitthvað af húsgögnum sem líta ágætlega út. Rómantísk og gamaldags stemming í göngufæri við alla helstu staði í Vesturbæ og Miðbæ. Umsækjendur eru beðnir um að senda greinargóða lýsingu á sínum aðstæðum og tilgreina nám eða atvinnu, aldur og aðra fjölskylduhagi. Aðeins rólegt fólk kemur til greina. Eignin er laus 1. júlí næstkomandi og hægt að skoða hana næstu daga.
Fylgifé
Eldhús
Samningsatriði
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 2 leigutakar
Hundar leyfðir
Fiskar leyfðir
Kettir leyfðir
Fuglar leyfðir
Mánaðarleiga
265.000 kr
2 umsóknir hafa verið sendar
Laus frá
22 maí 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
265.000 kr
Tryggingafé
1 mánuður / 265.000 krInnflutningsverð
530.000 kr
Leigt út af Hallgrímur Óskarsson