




Þverholt 21
270 Mosfellsbær
45,2 fm 2ja herbergja endaíbúð á 2. hæð í lyftuhúsi við Þverholt 21 í Mosfellsbæ. Íbúðin er við miðbæinn, í göngufæri við matvöruverslanir, bakarí, leikskólann Hlíð o.fl.
Eignin skiptist í stofu/eldhús, svefnherbergi og baðherbergi. Í íbúðinni er ísskápur, uppþvottavél og þvottavél. Rúllugardínur eru í gluggum. Núverandi leigjendur eru í íbúðinni út júní og því laus í byrjun júlí eftir þrif og málningarvinnu ef þarf.
Nánari lýsing; Komið er inn í hol með fatahengi. Stofa og eldhús í sameiginlegu rými. Hvít eldhúsinnrétting með ísskáp, uppþvottavél og þvottavél. Í svefnherbergi eru rúmgóðir hvítir fataskápar. Harðparket er á öllum rýmum fyrir utan baðherbergi. Baðherbergi er með dúk á gólfi og veggjum, upphengdu salerni, sturtu og innréttingu. Úr stofu er gengið út á svalir. Þar sem íbúðin er endaíbúð eru gluggar á tvo vegu.
Leiguverð: 280.000 á mánuði. Innifalið: hússjóður og hiti. Rafmagn greiðir leigutaki sjálfur. Meðmæli. 2ja mánaða leigutrygging.
Reykingar bannaðar í íbúð, á svölum og á lóð. Dýrahald ekki leyfilegt.
Fylgifé
Ísskápur
Uppþvottavél
Þvottavél
Svalir
Eldhús
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
280.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Laus frá
5 júl 2026
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
280.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 560.000 krInnflutningsverð
840.000 kr
Leigt út af Kristín