




Írabakki 18
109 Reykjavík
Björt og falleg 3ja herbergja endaíbúð á 1. hæð - 109 Reykjavík
Til langtímaleigu í 12 mánuði, með möguleika á áframhaldandi leigu. Trygging er tveir mánuðir, og hiti og hússjóður eru innifalin í leiguverði.
Íbúðin er 79,6 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af 65,8 fm íbúðarhluti og 13,8 fm sérgeymsla í kjallara. Hún er vel skipulögð og björt með útgengi á svalir sem umlykja íbúðina á þrjá vegu. Íbúðin skiptist í forstofu með fataskáp, rúmgott og bjart eldhús með hvítri innréttingu og góðu skápaplássi, rúmgóða stofu og borðstofu með parketi og útgengi á svalir. Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni, þar af eitt rúmgott hjónaherbergi með fataskápum og minna barnaherbergi, bæði með parketi á gólfum. Baðherbergið er flísalagt með baðkari, sturtuhengi, glugga og góðu skápaplássi. Sérgeymsla með gluggum er staðsett í kjallara hússins (hefur verið notað sem auka svefnherbergi).
Sameign hússins býður upp á sameiginlegt þvottahús með tengjum fyrir hverja íbúð og hjóla- og vagnageymslu er á jarðhæð. Ljósleiðari er kominn inn í íbúðina.
Íbúðin er staðsett í fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í leik- og grunnskóla, frábær leik- og íþróttasvæði, og allar helstu verslanir og þjónustu í Mjódd.
Falleg og vel skipulögð íbúð í góðu hverfi – laus til leigu strax!
Óskað er eftir meðmælum frá fyrri leigjanda!
Fylgifé
Þvottavél
Geymsla
Uppþvottavél
Svalir
Eldhús
Án húsgagna
Hiti og rafmagn
Hiti innifalinn
Rafmagn ekki innifalið
Hússjóður innifalinn
Internet ekki innifalið
Húsreglur
Reykingar ekki leyfðar
Hámark 5 leigutakar
Gæludýr ekki leyfð
Mánaðarleiga
340.000 kr
1 umsókn hefur verið send
Leigutímabil
Ótakmarkað
Fyrsti mánuður
340.000 kr
Tryggingafé
2 mánuðir / 680.000 krInnflutningsverð
1.020.000 kr
Leigt út af Guðlaugur Orri Stefánsson